velkominn í saumaklúbb
RSS tengill
Myndir
Aðrir bloggarar
03.11.2006 09:54:14 / Agnes

Maja á afmæli

Maja okkar á afmæli í dag!!!

Elsku besta sæta Maja mín, innilega til hamingju með daginn!!

Vona að þú eigir yndislegan dag.

vildi að ég gæti knúsað þig, en þú færð stóóórt knús frá Köben :)

miss you! :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 19:46:43 / Hugga

Hola gellz

Jæja er ekki komin tími til að blogga hérna held þar barasta :)

Vil bara þakka ykkur fyrir allar afmæliskveðjurnar allaf jafn gaman að þið munið eftir mér híhíhí 8) ég átti yndilsega afmælishelgi haldiði ekki að kallinn hafi ekki boðið konunni á Hótel föstudagskvöldið fórum á Fosshótel Nesjavelli ég get ekki sagt að ég mæli með þessu hóteli en við höfðum það bara rómó fengum fínan mat um kveldið og skelltum okkur svo í heitapottinn eftir á,svo var bara kúrt og tjattað bara nice :lol: svo um nóttina kom þetta svaka óveður og ég er að tala um mér stóð ekki sama það var roslegt og audda gat mín ekkert sofnað ekki sátt en odo vaknaði snemma og fengum við okkur morgunmat og skelltum okkur í bæinn stax en haldiði ekki að kallinn hafi gefið konunni Demantsgullhring  ójá minn hefur bara smekk dauðans :klikk: ég var ekkert smá ánægð hehe hringurinn er bara geðveikur úfff hann er svo mikið æði.

Meðgangan gengur bara vel og er þetta lítil bredda á leiðinni hvað annað hehe odo framleiðir bara stelpur :haha: ég er komin 25 vikur +3 daga og er þetta farið að líða ekkert smá hratt bara að verða búin eða svona næstum því.

Jæja núna eru flestar ykkar á leiðinni til mín í saumó leiðist bara pinu hehehe svo ég læt þetta duga í bili

Bið að heilsa ykkur öllum

Kv Hugga

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 14:26:41 / Maja

ísak leví 3ja

nú er litla barnið mitt 3 ja ára í dag....ég get samt einhvernveginn ekki glaðst yfir þessum degi...minnir mig bara á það að ég var í helvíti fyrir 3 árum að koma krakkanum út:evil: og láta sauma pí*una á mér við rúmið..:S    þetta er nákvæmlega dagurinn sem ég komst að því hvað konur væru í raun heimskar að láta koma sér í þessa aðsöðu og geta ekki haldið fokking löppunum á sér saman.  Svo vill maður auðvitað að börnin sín verði lítil að eilífu.... og nú er hann bara að verða stór:cry:

ein leið!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 14:21:26 / Maja

hahahaha

Manstu þegar við vorum í strætóog þú settir andlitið út í glugga og ég rassinn....og allir héldu að við værum tvíburar;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 09:42:54 / Solla

Er ekki komið að mér?

Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar :haha:

Mér finnst að þegar veðrið er svona leiðinlegt eins og það er í dag þá eigi að gefa frí í skólum = sem þýðir að ég fái frí :D Munið þið þegar við vorum litlar þá var stundum frí vegna veður!! ég held að það hafi ekki verið gefið frí vegna veðurs í mörg ár!!! Ætli veturinn verði aldrei aftur svona harður eins og hann var? Ég vil fá slæman vetur og þá gott sumar á móti, en eins og í ár þá höfum við ekki fengið neitt sumar!!! :(

Nóg af væli...ég er að fara í sveitina í dag í réttir. Héðinn hefur aldrei farið í réttir svo þetta verður fróðlegt ;) Síðan er ég að fara til London á þriðjudaginn í næstu viku...á Robbie Williams tónleika :D:D  óhætt að segja að ég geti ekki beðið!

Fór í leikhús í gær á "Viltu finna milljón" jú ég hló en ég var með kjánahroll allan fyrrihlutann því þetta var svo mikil þvæla. Ég fann til með fólkinu sem var svona vitlaust!

Góða helgi skvísur....gangið hægt inn um gleðinnar dyr!

Á ég að slumma Robbie fyrir ykkur? ..ég man bara eftir því að sumir héldu ekki legvatni yfir honum hér í den ;) no names


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 15:59:48 / Maja

omy god stelpur!!!!!

ég er að sjálfsögðu eins og vinir mínir  í friends með lista yfir 5 frægar manneskjur sem ég má sofa hjá. ég ætla ekkert að segja hverjir eru á listanum þar sem ég er með skrítinn smekk á þeim...but anyways.....!

ég er nýlega búin að bæta Matt dillon8) á listann ....eftir að ég sá hann í bío um daginn.það er nú ekki frásögufærandi nema það að gæinn er á Íslandi....á maður að láta slag standa?:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 15:11:56 / Agnes

.....afmælisbarn.....

Elsku Solla okkar!!!

Innileg til hamingju með daginn sæta!!!

Eigðu góðan dag!!!

Knús frá Köben


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 20:49:59 / Agnes

Hejsan piger!

Hæ pæs..
hvað segist ?
Úr Köben segist allt það besta, skólinn er ennþá snilld þótt erfiður sé og veðið er ennþá skít sæmó, þrátt fyrir ansi mikla rigningu (þá meina ég mikla) þrumur og eldingar undanfarið, þá er hitinn um 20°C - mjög nice.

Bjarkinn minn er kominn til mín, ásamt Tinnu systir og er Tinna svo elskuleg að vera hjá mér í viku í viðbót og hjálpa mér að aðlaga guttann á leikskólann, sem virðist ekki ætla að vera eins auðvelt og ég hélt. En sem betur fer er Tinna hérna, veit ekki hvernig ég fær að án hennar sko... Ekki hjálpar pabbinn til! Óneibbs.....

Skellti mér á Fredagsbar með Evu Dís og Tinnu síðasta föstudag og held ég megi nú alveg taka til orða systur minnar og segja að danskir strákar hafa sko heldur betur unnið í LITNINGALOTTÓINU!! újee... hrillilega sætir! ég held ég hafi varla séð ómyndarlegan mann hérna, án gríns... er allavega ekki með augun opin fyrir þeim. :)

Langaði bara rétt að kasta kveðju á ykkur, á að vera að læra, en er einhvern veginn ekki að geta einbeitt mér að Fysik (eðlisfræði) at the moment....
Reikna út straum sem fellur á viðnám á batteríi sem hefur 20 óm á hverju viðnámi og frv.... og segið mér svo.... :)
Er að spá í að skipta yfir í dönskuna bara... shit vitiði hvað það er erfitt að þýða enskan texta um járn og stál yfir á dönsku ??? det er for helvede svært!!

Vonandi hafið þið það gott á klakanum.
Er búin að gera mér myndasíðu - en get bara ekki byrjað að hlaða inná hana fyrr en ég fæ mína tölvu (er með tölvu í láni hjá elsku bestustu Hlín minni - hún er náttla bara æði - Hlín sko....... og tölvan líka) ;)

Heyri í ykkur við tækifæri - ikke? :)

Hilsen fra Köbenhavn

p.s. eru ekki annars allir í góðu tómi bara?? ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 10:59:11 / Maja

you,me and Dupree

vildi bara mæla með að þið færuð að sjá þessa mynd í bíó. Við fórum í gærkveldi og ég mæli alveg með þessari. og ummmmmmm...hvað Matt Dillon er ummmmmmmm...arrrggggg. ( Nonni minn ef þú lest þetta þá ert þú líka sætur;))jæja það þarf nú að fara að plana saumó kellur.  Ef þið eruð með einhverjar uppástungur látið þá vita!!!!

p.s kann einhver að setja myndir hérna inn á ...beint í síðuna.....endilega látið þá vita ...anyone!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 13:30:30 / Maja

verð bara aðeins að stríða ykkur

KRÚNK...KRÚNK..KRÚNK!!!!!!!!!:lol:

fyrir þá sem eru ekki að fatta djókið..kíkið á færslu frá 9 ág.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 15:10:29 / Agnes

Ég skal aðeins tjá mig :)

Jæja, þá er skólinn byrjaður í Köben og ég búin að vera hérna í næstum því 2 vikur!
Fyrsta vikan var nú hálf aumingjaleg, maður eitthvað einn, flakkandi á milli staða til að redda hinu og þessu.
Fór á tónleika í Tívolí á föstudagskvöldið, sá Gavin Degraw, One tree hill gaurinn. Það voru góðir tónleikar, svo eftir þá kíktum við aðeins í byen.

Á mánudaginn var svo hinn frægi Rustur, sem allir nýnemar fara í. Mli eindregið með því að ísland taki upp þennan sið eftir danina. Ég var búin að beila, en Hlín vinkona var svo elskuleg að skutla mér, svo ég myndi ekki hætta við. Djö... sé ég sko ekki eftir því að hafa farið. Þeta var massa skemmtilegt, mikið drukkið (alltof mikið huhummm) mikið gaman og mikið fjör, ekkert sofið og lítið sem ekkert borðað.
Það var einn íslenskur srákur með mér í ferðinni, Konni, (hann var að vinna á bílaverkstæðinu við hliðina á stöðinni) nokkuð nettur gaur. Við vorum látin syngja fyrir alla sem voru í ferðinni, með víkinghatta á hausnum, sungum "Krummi svaf í Klettagjá og Ríðum Ríðum" hehehe..... og ég sem kann sko ekki að syngja, en whatever.
Rusvejlederarnir (gaurarnir sem sáu um ferðina) eru helvíti hressir og skemmtilegir, ég hékk mest með þeim - enda eina stelpan sem kunni að haga sér eins og strákur. Fór í fótbolta og allt, skoraði meira að segja gullfallegt mark (vakti lukku).
Á þri kvöldið, var svo haldin Víkingafest, allir klæddir í búninga með hatta og svona, hrikalega gaman. 

Danskan gengur fínt, maður getur plummað sig fínt hérna, farin að skilj nánast allt, en á samt fjandi erfitt með að halda uppi samræðum edrú.. en það hefst.
Var að kaupa allar bækurnar fyrir skólann, doldið dýrt, en ...... ógeðslega spennandi nám sem ég er að fara í, með skemmtilegu fólki svo eveything er perfect.

Úff... er eitthvað svo spennt fyrir öllu saman, að ég babbla úti eitt, nenni ekki einusinni að lesa þetta yfir, svo þið afsakið ef það eru stafs.villur og fleira...

Ætla að búa mér til myndasíðu einhversstaðar, læt ykkur vita hvernig hún verður og hvar - ef þið viljið skoða....

bið að heilsa
Agnes


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 10:55:55 / Maja

hvað er þetta með ykkur gellur!

ætlar enginn önnur af ykkur að skrifa hérna inn nema ég......

ég ætla allavega að tjá mig smá hérna inni ( leiðist í vinnunni) Núna er fimmtudagur og þessi vika er búin að vera aldeilis erfið....:( Bróðir hans Nonna var jarðaður á þri. við rosalega fallega athöfn. Palli rós og snorri sungu í kirkjunni og vá :cry: hélt að ég ætlaði aldrei að hætta að grenja. Fæ bara illt í hjartað þegar ég hugsa til strákanna hans, svona ungir að missa pabba sinn. 

Við Nonni áttum einmitt 4 ára afmæli  ( shit..ég verð að fara að yngja upp) á þri.þannig að við verðum bara að halda uppá það við tækifæri. omygod hvað ég er að verða gömul ( hjartað missti úr slag:$) og vá hvað tíminn líður bilað hratt.......

Agnes sendi mér skilaboð um daginn og þá var hún á tónleikum með ( mig langar að segja De Grav...eitthvað) æi man það ekki ...en það var allavega gaman hjá henni.Bjarki átti einmitt afmæli í vikunni....á þri. 

jæja girlys, það er miklu fargi af mér létt eftir að hafa tjáð mig hérna ....hlakka til að heyra frá ykkur ...SSSSSláumst.


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 12:56:34 / Maja

gervityppalisti

hvað er málið....það er alltaf verið að hneyksla mig...hehehehehe

ég fór núna áðan niðrí HM að sækja nýja listann sem ég er búin að bíða eftir í nokkrar vikur, jey! ekki nóg með það að þetta er ekki lengur HM heldir heitir þetta núna Fólk ehf og er ekki með HM merkið lengur....allt annað merki ( reyndar rosa flott föt) ekki nóg með það að þá var ég að fletta listanum og merkja við allt sem mér finnst flott  ( til að gefa Nonna hint) og fletti svo á bls 134 og hvað blasir við mér.......úrval af víbradorum og gervi typpum!!!!!!!!!!!!!  best að hringja og panta sér 2 boli, sokka á mannin og 1 stk vibrador...HALLÓ. Sorry ég er bara svo bilað hissa.

Varð bara að deila þessu með ykkur og vara ykkur við ...ekki leyfa börninum ykkar að velja sér föt úr listanum. heyrumst ...MAJA


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 09:24:50 / Maja

bilað fyndið......

.....omy god stelpur...ég held bara að ég hafi ekki hlegið jafn mikið á minni litlu ævi eins og af þessu....þetta er rosalegt...og fær mig til að hugsa hvort maður sé að verða of gamall eða er hvort maður hefur ennþá smá siðferðiskennd!:^)

það var þannig að Jóna vinkona mín kom til mín í gær.....svo segir hún....hefuru heyrt það nýjasta í sexinu ( einstaklings-sexinu)....ég náttlega svaraði nei( saklaus as I am)

Það nýjasta heitir að KRÚNKA !!!!!!!!!!! 8|( get ekki annað en skellt uppúr um leið og ég skrifa þetta) muniði þegar við vorum yngri þá var talað um að maður fengi 5% fullnæingu að því að hnerra og að kúka...og eitthvað sonna kjaftæði.    Allavega þá er það nýjasta hjá strákum að krúnka.......sem er að rúnka sér og kúka um leið ( sem sagt fá fullnæinguna um leit og hnullinn lýtur dagsins ljós)....sem á þá að veita 105% fullnæingu.   

Það er nú ekki mikið sem getur hneykslað mig en ég fæ svona ósjálfráða klýju við tilhugsunina af þessari athöfn. Vildi nú bara deila þessu með ykkur og bið bara að heilsa ykkur....ætla að fara að gubba núna:$


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 13:25:45 / Maja

Geysp...OOOOOO

Halló tussur....þetta var nú frekar dapur hittingur þarna á fimmtudagskvöldinu....en það rættist nú heldur betur bara úr því heima hjá sólveigu.

Alla vega takk fyrir síðast:)

Nú er verslunamannahelgin búin og ég var að koma í vinnuna eftir 4 vikna frí:cry: og ég held að ég sé barasta að deyja hérna.......killing me softly. við erum reyndar búin að hafa það rosa gott í fríinu, við ísak erum bara búin að vera kúra okkur heima og fara í sund og út að leika og sonna gaman. Við fórum í 2 útilegur...í Grundarfjörð ( til brósa) og svo á Síldarævintýri á Siglufirði ...rosa fínt sko...þurftum bara að koma soldið fyrr heim en ætlað var því bróðir hans Nonna dó á lau.:cry: sem er náttlega ömurlegt aðeins 35 ára.

það er nú frekar einmannalegt í vinnunni hjá mér núna.......sakna Agnesar alveg helling. Engin til að slúðra við um þetta skrítna fólk sem vinnur hérna...hehehehehe

Ég er að gera smá breytingar heima hjá mér.....eins og vanalega.....þannig að ég væri til í að bjóða ykkur heim  við tækifæri...jafn vel bara á laugadagskvöldi...hvað segið þið um það? jæja er ekki best að maður fari að gera eitthvað að viti hérna.

BleSSSSSS( smámælt Sko) heyrumSt. MAJA


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3